Spurt og Svarað
|
Ég er með
tölvuert af video- og hljóðefni á einum vefnum svo mér líst vel á 4GB
silfurpakkann. Ég las á vefnum ykkar að þið tækjuð ekkert aukalega fyrir hýsingu
á léni - en einhvers staðar hljóta mörkin að liggja varðandi hversu mörg lén
maður getur haft hjá ykkur?
Mörkin á fjölda léna liggja í buddu viðskiptavina okkar en kostnaður
þeirra er nægur þó við gerum þeim ekki erfiðara fyrir með því að okra á
því sem kostar okkur ekkert. Fjöldi léna hefur nánast engin áhrif á
afköst veþjóna heldur er það fyrst og fremst vinsældir þeirra
heimasíðna sem vistaðar eru. Flestir okkar viðskiptavina eru á
innanlandsmarkaði og álag því lítið í stærra samhengi. Vélbúnaður okkar
er þó mjög afkastamikill og langt yfir því sem við þurfum strangt til
tekið.
|