Stjórnborðið cPanel |
![]() |
Leiðbeiningar | |||
Stjórnborð vefhýsingarinnar heitir cPanel en slóðin að cPanel er www.vefir.net/cpanel . Vinsamlegast athugaðu að slóðin sem hér er nefnd er til einföldunar svo auðveldara sé að muna hana. Hin eiginlega slóð er https://vps.vefhysing.com:2083 en stutta útgáfan breytist í þessa lengri við tengingu.
Í gegn um stjórnborðið er öllum helstu þáttum vefhýsingarinnar stjórnað. Ef bæta þarf við eða breyta netföngum, lykilorðum, lénum, framsendingum, ruslpóstsíun, gagnagrunnum ofl. ofl. er það gert í gegn um stjórnborðið. Viðskiptavinir okkar hafa fullan aðgang að þessum þjónustum, þ.á.m. uppsetning eigin léna og eyðing eigin léna. Ein mikilvægasta þjónustan í stjórnborðinu er afritunin. Þó svo við afritum öll vefsvæði daglega þykir viðskiptavinum okkar handhægt að geta tekið sín eigin afrit. Afritið er ýmist sent inn á vefsvæðið sjálft (í rótina) eða notandinn getur látið senda það á ftp þjón hjá sér eða öðrum. Þegar heilu vefsvæðin eru færð á milli þjónustuaðila eða vefþjóna er þessi aðferð t.d. notuð. Allar upplýsingar sem við koma einni vefhýsingu eru innifalin í einni zip skrá.
|