|
Spurt og Svarað
|
"Verð
hjá ykkur er áberandi lægra en annars staðar, er það vegna þessa að vefirnir eru
hýstir í Bandaríkjunum?
|
Nánar...
|
Spurt og Svarað
|
Lénum sem eru í vefhýsingu hjá okkur skal vísa á eftirfarandi nafnaþjóna:
ns1.vefhysing.com
ns2.vefhysing.com
Um nafnaþjóna
Segja má að nafnaþjónar séu hinar rafrænu "símaskrár" internetsins en í stað símanúmera er haldið utan um svokallaðar IP tölur. Þegar þú slærð inn veffang (Internet address) í vafran þinn (browser) flettir tölvan þín sjálfkrafa upp í þeim nafnaþjónum sem hún hefur verið stillt á.
|
Nánar...
|
|
Spurt og Svarað
|
Þetta er alls ekki tæmandi listi yfir það sem er innifalið í vefhýsingunni en gefur yfirlit yfir það helsta sem viðskiptavinir okkar spyrja um.
|
Nánar...
|
Spurt og Svarað
|
Hafir þú áhuga á að bæta við
léni með sérstöfum er ekkert því til fyrirstöðu
lengur. Isnic er með sérstakt
tilboð til þeirra sem eiga lén sem passa við samsvarandi lén
með sérstöfum. Ath. að hugbúnaður gesta þarf að umrita
nafn lénsins þannig að ekki er sjálfgefið að hægt sé
að slá þessi lén inn hvar sem er.
Dæmi: http://www.íkon.is umritast sem xn--kon-qma.is.
|
Nánar...
|
Ruslpóstur
|
Bæði orðin í fyrirsögninni tengjast hryllingi í huga okkar flestra í nánast öllu öðru samhengi. En þegar þau standa saman eru þau fagnaðarefni jafnvel grandvörustu einstaklingum. |
Nánar...
|
Ruslpóstur
|
Ef þú færð ruslpóst að því er virðist frá vinum þínum eða tilteknum netföngum sem þú getur rakið til t.d. íslenskra léna / vefsíðna er ekki þar með sagt að viðkomandi sé ábyrgur fyrir sendingunni. Gerðu sjálfum þér greiða og slepptu því að hella þér yfir mann og annan af slíku tilfefni. Ef að líkum lætur værirðu að skammast í blásaklausu fólki. Fyrir alla muni láttu einnig vera að senda viðkomandi athugasemdir um vírusvarnir því þær eru engin trygging gegn misnotkun óprúttina aðila á netföngum fólks. |
Nánar...
|
Ruslpóstur
|
Ruslpóstsían Spam Assassin er eins og nafnið gefur til kynna vægðarlaus við ruslpóstinn. Ýmsir möguleikar bjóðast í uppsetningu þessarar þjónustu en allar stillingar fara fram í gegn um stjórnborðið (cpanel - sjá Spam Assassin undir E-Mail hlutanum).
|
Nánar...
|
|
Ruslpóstur
|
Stjórnborðið (cPanel) gefur okkur þann kost að hreinlega hafna ruslpósti og hleypa honum aldrei í pósthólfið þitt. Þeir sem senda póstinn fá því höfnun til baka og hafa ástæðu til að fjarlægja viðkomandi netfang af póstlistanum.
|
Nánar...
|
Ruslpóstur
|
Hefurðu velt fyrir þér hvernig þeir sem senda ruslpóst hafa komist yfir netföngin þín? Það eru nokkrir stórir lekar á vefnum sem margir eru varnarlausir fyrir... nema þeir hafi eftirfarandi upplýsingar. Ruslpóstþrjótarnir nota sérstök kerfi sem eru ýmist kölluð crawlers eða robots og við skulum kalla netfangara. Þau kemba netsíður um allt internetið og uppskeran er hundruð þúsunda netfanga á nokkrum dögum. Netföngin eru svo seld aftur og aftur, milljónir ruslpósta eru sendir út og þrjótarnir hagnast vel á því að selja misvitrum þjónustuna.
|
Nánar...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 3 af 3 |