|
Forsíða Um okkur Skilmálar vefhýsingar
Með því að panta hýsingu hjá EDAL.NET gengurðu
sjálfkrafa að eftirfarandi skilmálum:
Þessi samningur er á milli edal.net, hér eftir nefndur "þjónustuaðili"
og þín, hér eftir nefndur "notandi".
A. FRÍUN ÁBYRGÐAR VARÐANDI VEF NOTANDA OG SKILGREINING Á SAMBANDI
SAMNINGSAÐILA
- Notandi lofar að halda þjónustuaðila óábyrgum gagnvart
lögsóknum eða kostnaði, þ.á.m. eigin málskostnaði
og kostnaði við vörn vegna mála er upp kunna að koma vegna vefsvæðis
hans og innihald þess.
- Ekkert í þessum samningi skal skilið þannig að þjónustuaðili
sé samstarfsaðili, útgefandi eða í ritstjórn varðandi
innihald vefsvæðis notanda. Báðir aðilar viðurkenna og samþykkja
að þjónustuaðili beri enga ábyrgð á innihaldi vefsvæðis
notanda. Eina meðhöndlun þjónustuaðila á vef notanda er tæknilegs
eðlis.
- Notandi lofar að halda þjónustuaðila óábyrgum gagnvart
lögsóknum eða kostnaði varðandi lénanöfn (domain names)
sem hann notar.
B. GREIÐSLA FYRIR ÞJÓNUSTU OG INNIHALD
- Notandi samþykkir að greiða þau gjöld sem sett voru fram við
skráningu vefhýsingar hans. Áskrift fyrir vefhýsingu skulu greidd
fyrirfram fyrir 3 mánuði í senn nema um annað sé samið en gjöld
fyrir aðra þjónustu má greiða eftir á samkvæmt nánara
samkomulagi.
- Notandi samþykkir að hafi greiðsla ekki borist innan 15 daga frá dagsetningu
reiknings eða fyrir 10. dag hafins hýsingartímabils eftir því
sem við á hverju sinni megi þjónustuaðili loka fyrir þjónustuna
án frekari fyrirvara þar til reikningar hafa verið gerðir upp. Að öðru
leyti gilda landslög og venjur um innheimtu skulda, þ.m.t. varðandi innheimtukostnað
og dráttarvexti.
- Engin önnur þjónusta eða aðstoð er innifalin í mánaðarlegum
gjöldum fyrir vefhýsingu. Gert er ráð fyrir að notandi hafi eða
afli sér þeirrar þekkingar sem þarf til að stýra sínu
vefsvæði og leiti hann aðstoðar þjónustuaðila fellur sú
aðstoð undir gjaldskrá þjónustuaðila.
C. HÖFNUN Á ÞJÓNUSTU
Þjónustuaðili áskilur sér rétt til að hafna eða
loka fyrir þjónustu án fyrirvara telji hann notanda hafa brotið gegn skilmálum
þessum. Notandi hefur í því tilfelli enga kröfu á endurgreiðslu
fyrir greidda þjónustu.
D. INNIHALD
- Þjónustuaðili heldur í heiðri tjáningarfrelsinu. Vefsvæðið
fær að halda sér óáreitt svo framarlega sem innihald þess
brýtur ekki í bága við landslög svo sem eins og varðandi barnaklám,
höfundarrétt eða ærumeiðingar (sjá lög nr. 30/2002 14.
gr.). Vitneskja/grunur um að barnaklám sé vistað á vefsvæði
mun leiða til umsvifalausrar lokunar á vefsvæðinu og tilkynningar til lögmætra
yfirvalda.
- Notandi er ábyrgur fyrir öllu innihaldi vefsvæða sinna og flutningi
gagna til eða frá þeim.
E. NOTKUN ÞJÓNUSTUNNAR
- Notandi lofar að viðhafa almenna kurteisi við notkun vefsvæðis síns
og forðast að nota dreifingarlista og rafrænan póst eða aðra tækni
fyrir magndreifingu auglýsinga án samþykkis viðtakenda. Þetta
er almennt kallað ruslpóstur eða spam á máli internetsins.
- Notandi lofar að viðhalda réttu netfangi sínu og símanúmeri
hjá þjónustuaðila svo hafa megi samband við hann varðandi þjónustuna
eða gjöld eða annað.
- Notandi samþykkir að verða við óskum þjónustuaðila
varðandi beitingu tóla er kunna að trufla þjónustu til annarra notenda.
F. SKILMÁLAR SAMNINGS OG SAMNINGSSLIT
Þessi samningur gildir upphaflega í minnst einn mánuð en framlengist síðan
sjálfkrafa um einn mánuð í senn eða þar til annarhvor aðili
segir honum upp. Uppsögn má fara fram með tölvupósti frá netfangi
sem sannanlega er í eigu viðkomandi. Komi til uppsögn fyrir tímabil sem
notandi hefur greitt fyrir á hann rétt á endurgreiðslu hafi hann ekki
brotið á þjónustuaðila eða skilmálum þessa samnings.
Uppsögn skal berast minnst 7 dögum fyrir mánaðarmót ella áskilur
þjónustuaðili sér rétt til að rukka fullt áskriftargjald
fyrir komandi mánuð.
G. ÖRYGGI
Notandi samþykkir að reyna ekki að grafa undan eða skaða vefþjóna,
netþjóna, viðskiptavini eða hagsmuni þjónustuaðila. Slíkt
mun leiða til lokunar á þjónustu án fyrirvara og lögsóknar
ef tilefnið telst alvarlegt og vísvitandi.
H. UMFANG SAMNINGS
- Samning þennan skal halda í heiðri gagnvart öllum undirlénum
notanda, þjónustuaðila og vefþjónum þjónustuaðila.
- Þjónustuaðili áskilur sér rétt til að breyta og
bæta við skilmála þessa samnings án frekari fyrirvara.
Ég hef lesið skilmálana og samþykki þá án fyrirvara
|
|